Samband í Berlín lyrics

by

Bubbi Morthens


[Verse]
Nú þyrla vindar haustsins hinstu blöðum
Borgin gerist þung og sljó
Skakkur hangi ég á hinum og þessum stöðum
Bráðum kemur slydda og snjór

[Chorus]
Myrkrið hug minn umlykur
Að blekkja sjálfan mig það er mín fró
Horfa á vini sína bryðja sýrur eins og sykur
Spá í augu þeirra sem eru eins og kulnuð eldstó

[Verse]
Í frosti, í rauðri lakkkápu með bláa fætur
Klúryrðum hún hvíslar að þér og hún lyktar af ódýrum bjór
Kynfærin þurr eins og hákarlaskrápur
Verndarinn var ómenni og eftir því stór

[Chorus]
Nú hylur snjórinn haustsins hinstu blöð
Borgin gerist þung og sljó
Með bakpokann arka ég streit niður á stöð
Því af Berlín eða Hamborg hefi ég fengið nóg
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net