Stórir strákar fá raflost lyrics
by Bubbi Morthens
[Verse]
Þeir hringdu í morgun, sögðu að Lilla væri orðin óð
Að hún biti fólk í hálsinn drykki úr þeim allt blóð
Hún hafði sagt, hún gæti ekki dottið
Hún hefði engan stað til að detta á
Hún sagðist breytast í leðurblöku
Að hún flygi um loftin blá
[Verse]
Læknirinn var miðaldra, augun í honum voru grá
Hann djönkaði sig með morfíni sagðist hafa unnið hér í 15 ár
Þá órólegu geymdu á deild
Sem var sérhönnuð fyrir þá
Það átti að setja Lillu í raflost
Hann bauð mér að horfa á
[Chorus]
Stórir strákar fá raflost (Stórir strákar fá raflost)
Stórir strákar fá raflost
(Stórir strákar fá raflost)
[Verse]
Gangastúlkurnar hvæstu og sýndu sér tennurnar
Þær skipuðu mér að fara í rúmið sögðu: "Tími kominn á pillurnar"
Ég sagði þeim að ég væri gestur
Að ég væri á leiðinni heim
Þær skelltu mér með látum í gólfið
Sögðu svo: "Þú ert einn af þeim!"
[Verse]
Á kvöldin kemur læknirinn og segist vera vinur minn
Segir: "Þú verður að vera rólegur, þú æsir upp öll hin"
Segir að ég sé tveggja ára meðferð
Hann býður mig velkominn
Segir á morgun fái ég raflost
Svo ég verði eins og öll hin
[Chorus]
Stórir strákar
Fá ra-a-aflost
Stórir strákar
Fá ra-a-aflost
Stórir strákar
Fá ra-a-aflost
Stórir strákar
Fá ra - a - aflost