Á ferð til Breiðafjarðar vorið 1922 lyrics

by

Sigur Rós



Hugann seiða svalli frá
Sundin, heiði og skörðin;
Vona-leið er valin þá
Vestur Breiðafjörðinn

Alt er borið burtu gróm
Bæði af Skor og fjöllum
Því að vorið blóm við blóm
Breiddi í sporum öllum

Dægur-halli daggperlum
Dreifir vallargróðann;
Bjargastalla beltast um
Blessuð fjallamóðan

Þrjóti grið á þessum stað
Þá er lið að skeiðum
Því að hlið er opið að
Úthafsmiðum breiðum
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net