Í næsta lífi lyrics

by

XXX Rottweiler Hundar


[Verse 1]
Sá nashyrninga hjörð
Í amerískum fötum
Þambandi úr glösum
Standandi í röð í
Bankastræti
Dýragarðsbörn
Klædd í adidas
Með jónur sem að líta út eins og fajitas
Ef þetta er real life
Ég er f*cked
Verð að bank'í strætið
Bærinn hann iðar af lífi
Eins og smábarn með njálg
Allir að fá sér
Og spólgraðir táningar
Sem vaða í ógrynni af klámi upp að hnjám
Og ég er tæpur
Sit með munnræpu á knæpu
Mæðurnar læsa inni dætur
Sem læsa inni mæður
Og báðar þær læðast svo hingað á nætur
Djöfull er ég nettur
Ég er nettasti náunginn á plánetunni jörð!
Þarf alltaf að vera vín?
Að sjálfsögðu nörd
Svo mikið af drykkjarvörum á mínum vörum
Að ég verð að fara á börum út af börum
En mér er sama
Því að
Satt best að segja er ennþá gaman
Því að
Ég er ennþá þamba tequila
Ég er ennþá á f*cking lífi mamma mía
Með bein og fleira í nefinu
Þú veist að ég stend mig í stykkinu
Þar til ég hrekk upp, dömpið svo líkinu
Í tunnunni, kompunni, portinu á prikinu
[Hook]
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Svo f*cking farinn, það næst ekki í mig
Endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!)
Næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Svo f*cking farinn, það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!)

[Bridge]
Áður en þú veist af, er neyslan
Hættu að vera veisla
Beislaðu púkann, bruv beislað'ann
Áður en þú veist af, er neyslan
Hættu að vera veisla
Beislaðu púkann, bruv beislað'ann

[Verse 2]
Sá nashyrningahjörð
Í amerískum fötum
Þambandi úr glösum
Standandi í röð á
Laugaveginum
Hér er bara hlaupið með nautnunum
Miðað við þá allra blautustu
Þá það mætti halda að það væri
Laug á veginum
En þetta eru engar hyllingar
f*ck, ég judge-a ekki
En ég er líka til í allt
Spinnigal unglingar
Og fullorðnir villingar
Það skemmir ekki fyrir
Við að skvetta af smá bensíni á bálið mitt
Funheitur, Alelda, Sódóma, Stefán í sálinni!
Sá nashyrningahjörð
Klukkan rassgat
Er nú ekki liðin í neitt neitt
Brimheit og brosandi eins og eimreið
Ógnandi þeim sem að eiga leið um hverfisgötuna
Það er meitlað í stein
Þegar maður er meyr
Fær maður sér meir
Þegar maður er meyr
Það er maður sem er meir
Svo deyr
Og hverfur í götuna
En það er lífshlaup
Sem mér þykir bragðast vel
Svo ég blanda mér bara annan hanastél
Fer á diskótek og disco tek
Ég neita að haga mér
Mamma sagði við mig
Gakkt út um gleðinnar dyr
Ekki drekka of mikið
Ekki sofna í sygtið
Sorry mamma
Sparka upp hurðinni
Og byrja að hella í mig
[Hook]
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Svo f*cking farinn, það næst ekki í mig
Endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!)
Næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Svo f*cking farinn, það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!)
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Svo f*cking farinn, það næst ekki í mig
Endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!)
Næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
Ég er svo f*cking farinn að það næst ekki í mig
Svo f*cking farinn, það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!)
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z #
Copyright © 2012 - 2021 BeeLyrics.Net